Lög Meistarafélags byggingamanna, Norðurlandi
- grein.
Félagið heitir Meistarafélag byggingamanna, Norðurlandi. Skammstöfun M.B.N.
- grein.
Heimili þess og varnarþing er á Akureyri. Félagssvæðið nær yfir allt Norðurland.
- grein.
Tilgangur félagsins:
- Að safna saman í eitt félag öllum starfandi iðnmeisturum sem tengjast byggingariðnaði á félagssvæðinu og efla samstarf og samheldni meðal þeirra. 2. Að gæta hagsmuna félagsmanna, bæði gagnvart verkkaupum svo og öllum starfsmönnum þeirra, sérstaklega að því er varðar launakjör og hvers konar samningsatriði.
- Að koma á sem mestu samræmi í atvinnurekstri meistara í sömu iðngreinum, sem við kemur kjarasamningum, og vinna að því, að iðnmeistarar byggi iðn sína á heilbrigðum grundvelli.
- Að vinna að aukinni menntun, verkkunnáttu og verkvöndun iðnstéttanna. 5. Að leiðbeina félagsmönnum og vera þeim til aðstoðar í öllu því, sem þeim má að gagni koma og við kemur iðngreinum og atvinnurekstri þeirra.
- Að vera málsvari félagsmanna gagnvart almenningi og hinu opinbera. 7. Að vinna að öruggri fjárhagsafkomu þeirra.
4. grein
Heimilt er félaginu að vera aðili að samtökum atvinnurekenda, s.s. Samtökum iðnaðarins eða hliðstæðum samtökum. Samkomulag um slíka aðild skal leggja fyrir félagsfund.
Félagar geta orðið allir þeir meistarar sem standa fyrir atvinnurekstri í löggiltri iðngrein í byggingariðnaði á félagssvæðinu, svo og fastráðnir iðnmeistarar fyrirtækja, enda séu þeir ekki félagsmenn í launþegafélagi viðkomandi iðngreinar.
Inntökubeiðni skal senda stjórn félagsins skriflega á þar til gerðu eyðublaði og skal hún kanna rétt umsækjanda til aðildar að félaginu. Telst viðkomandi löglegur félagsmaður, er hann hefir undirritað lög félagsins og stjórn félagsins samþykkt félagsaðild hans.
Heimilt er þeim, sem nú eru félagar í M.B.N., en uppfylla ekki fyrrgreind skilyrði, að vera áfram félagsmenn á sama grundvelli og hingað til. Félagsmenn skulu greiða árgjald til félagsins, sem aðalfundur ákveður fyrir eitt ár í senn. Stjórnin setur reglur um innheimtu árgjalda.
Fullgildir félagsmenn, sem náð hafa 70 ára aldri og hafa verið félagsmenn í 15 ár að lágmarki, geta sótt um að vera undanþegnir skyldu til greiðslu árgjalds enda hafi þeir hætt störfum sem iðnmeistarar. Ef stjórn félagsins samþykkir umsókn þeirra skulu þeir vera undanþegnir skyldu til greiðslu árgjalds en halda öllum félagsréttindum að því undanskildu að kosningarétt á aðalfundi hafa þeir ekki.
- grein.
Heimilt er að veita forsvarsmönnum iðnfyrirtækja á félagssvæðinu inngöngu í félagið, þó þeir uppfylli ekki skilyrði 2. mgr. 4. gr. um að hafa meistarabréf í iðn sinni. Um inntöku þessara aðila í félagið skal farið samkvæmt 3. mgr. 4. gr.
- grein.
Heimilt er að segja sig úr félaginu með skriflegri tilkynningu, til félagsins, með sex mánaða fyrirvara. Þó getur enginn sagt sig úr félaginu á meðan á vinnudeilu eða verkbanni stendur.
- grein.
Ekki mega félagsmenn árita teikningar sem meistarar, nema sem verktakar eða sem starfsmenn fyrirtækja, enda sjái þeir um daglegt eftirlit meðan á framkvæmd verksins stendur.
- grein.
Óheimilt er félagsmönnum að ganga inn í verk annarra félagsmanna eða gera tilboð í verk, sem annar félagsmaður hefir gert samning um að vinna.
- grein.
Rísi ágreiningur milli meistara, verktaka og verkkaupanda út af vanefndum á greiðslum efnis eða vinnu eða af öðrum ástæðum og meistari hættir störfum að einhverju eða öllu leyti, skal félagsmönnum í slíkum tilfellum óheimilt að taka upp eða halda áfram eða vinna annað fyrir sama verkkaupanda, fyrr en sætt er komin á eða verkkaupandi hefir sett fulla tryggingu fyrir greiðslu og aldrei fyrr en viðkomandi meistari hefir afsalað sér verkinu.
- grein.
Ef einhver félagsmaður telur þörf á aðgerðum vegna ágreinings á vinnustað eða af öðrum ástæðum, skal hann senda skrifstofu félagsins skrifleg tilmæli þar um ásamt skýrslu um tildrög málsins. Ber þá framkvæmdastjóra í samráði við formann félagsins að ákveða málsmeðferð. Synji framkvæmdastjóri og formaður um aðgerðir og aðstoð getur viðkomandi félagsmaður óskað eftir stjórnarfundi um málið og fer þá um afgreiðslu þess samkvæmt ákvæðum 17 gr. laga þessara.
- grein.
Stjórninni er skylt að gera allt, sem í hennar valdi stendur til að aðstoða félagsmenn við innheimtu skulda.
- grein.
Verði félagið við kröfu einstaks félaga um aðgerðir, er leiða til sérstaks kostnaðar fyrir félagið, s.s. rekstri mála fyrir dómstólum og/eða greiðslu skaðabóta, skal viðkomandi félagi bera kostnað á móti félaginu eftir mati félagsstjórnar, ef málið er þannig, að hann einn hefir haga af rekstri þess. Hins vegar ber félagið eitt allan kostnað, ef málið snertir alla í viðkomandi iðngrein.
- grein.
Stjórn félagsins er skipuð sjö mönnum: formanni, ritara, gjaldkera, varaformanni og þremur meðstjórnendum, kosnum á aðalfundi skriflegri, bundinni kosningu til þriggja ára í senn. (Í fyrsta sinn eftir sameiningu Meistarafélaga byggingamanna á Norðurlandi í einu félagi skal kjósa formann og tvo meðstjórnendur til tveggja ára, ritara og vararformann til þriggja ára og gjaldkera og meðstjórnanda til eins árs). Á sama hátt skal kjósa 3 varamenn til eins árs í senn. Einnig 2 skoðunarmenn og einn til vara. Láti stjórnarmaður af störfum skal á næsta aðalfundi kjósa annan í hans stað.
- grein.
Stjórnin hefir á hendi yfirstjórn allra mála milli funda. Skal hún kalla saman félagsfund, ef 1/5 félagsmanna óskar eftir og getur um ástæðu. Nýbreytni alla og meiri háttar mál skal stjórn félagsins bera undir félagsfund og getur hún aðeins ráðið málum til lykta, að félagsfundur hafi falið henni það með sérstakri samþykkt.
- grein.
Félaginu ber að hafa opna skrifstofu, er annast allar framkvæmdir félagsins að fyrirlagi stjórnar s.s. uppmælingar verka og fleira gegn greiðslu.
- grein.
Stjórnar- og félagsfundir.
Formaður boðar til allra funda félagsins og stjórnar þeim. Þó er formanni heimilt að tilnefna fundarstjóra í sinn stað. Í forföllum formanns gegnir varaformaður störfum hans. Ritari skal bóka í gjörðabók félagsins í stuttu máli meðferð mála og afgreiðslu þeirra. Skal fundargerðin í lok fundar borin upp og undirritast af formanni og ritara, er samþykkt hefir verið. Á stjórnarfundum skulu allir viðstaddir stjórnarmenn undirrita fundargerð.
Nú óska tveir stjórnarmenn eða fleiri eftir því að haldinn sé stjórnarfundur og geta um ástæðu. Ber þá formanni að boða til slíks fundar svo fljótt sem við verður komið.
Félagsfundi skal boða með þriggja daga fyrirvara og sé fundarefnis getið. Þó má boða áríðandi skyndifundi með eins dags fyrirvara með auglýsingu í útvarpi. Fundir eru löglegir sé löglega til þeirra boðað. Einfaldur meiri hluti atkvæða ræður úrslitum á öllum fundum félagsins sé annað ekki tekið fram. Ef um lagabreytingar er að ræða öðlast þær því aðeins gildi, að 2/3 hlutar atkvæðisbærra fundarmanna greiði þeim atkvæði.
Stjórn félagsins fer með atkvæði Meistarafélags byggingamanna á Norðurlandi innan Samtaka iðnaðarins.
- grein.
Aðalfundur.
Aðalfundur félagsins skal haldinn fyrir lok aprílmánaðar ár hvert. Skal til hans boðað bréflega með 7 daga fyrirvara. Aðalfundur er löglegur sé löglega til hans boðað.
Málaskrá aðalfundar:
- Inntaka nýrra félaga.
- Formaður gefur yfirlit um störf stjórnar á síðasta ári.
- Framkvæmdastjóri flytur skýrslu um starfsemi félagsins, mælingar og eftirlitsstörf og verkefni skrifstofu.
- Endurskoðaðir reikningar félagsins fyrir síðasta ár lagðir til afgreiðslu. 5. Lagabreytingar.
- Kosning formanns, sbr. 13. gr. laga..
- Kosning stjórnar, varamanna, skoðunarmanna og varamanns, sbr. 13. gr. laga. 8. Stjórn leggur fram fjárhagsáætlun fyrir komandi ár og tillögu um árgjald. 9. Önnur mál.
- grein.
Reikningsár félagsins er almanaksárið og skal ársreikningum þess lokið eigi síðar en 1. mars ár hvert. Skulu þeir sendir til endurskoðenda og þeir hafa lokið störfum sínum fyrir 1. apríl.
- grein.
Verði félagsmaður þess áskynja, að einhver félagsmaður brjóti eða hafi brotið lög eða aðrar samþykktir félagsins, er hann skyldur til þess að gera stjórn félagsins viðvart. Skal stjórnin rannsaka málið og að því búnu leggja úrskurð á það. Brot gegn lögum eða samþykktum félagsins varða áminningu, brottvikningu um stundarsakir eða að fullu og öllu, ef sakir eru miklar. Einnig er félagsstjórn heimilt að beita sektum að upphæð frá kr. 5.000.- til kr. 100.000.- Úrskurði stjórnar má skjóta til félagsfundar, sem er æðsta vald í slíkum málum nema brotið varði að einhverju leyti við landslög. Sektarfé má innheimta með málssókn.
- grein.
Hætti félagið störfum skulu eignir þess renna til þeirra stofnunar, sem að dómi félagsslitafundar er skyldust starfsemi félagsins og líklegust til að verða meisturum á félagssvæðinu að mestum notum. Um félagsslit ber að hafa tvo fundi með mánaðar millibili og þurfa 2/3 hlutar atkvæðisbærra fundarmanna að samþykkja slitin á báðum fundum svo löglegt sé.
Lög þessi eru samþykkt 10. nóvember 2020